Samninganefndir sjúkraliða og félagsmanna SFR á hjúkrunarheimilum og stofnunum innan Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu og viðsemjendur þeirra sitja enn á fundi í húsnæði ríkissáttasemjara.
Ótímabundið allsherjarverkfall sjúkraliða og félagsmanna SFR á hjúkrunarheimilum og stofnunum innan Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu hefst klukkan átta náist samningar ekki fyrir þann tíma.