60 manns leita íslensku konunnar

Frá leitarsvæðinu í Fljótshlíðinni í dag.
Frá leitarsvæðinu í Fljótshlíðinni í dag. mbl.is/Rax

Um sextíu manns, lögreglumenn, björgunarsveitir, kafarar og áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, leita nú að íslenskri konu á fertugsaldri sem saknað hefur verið frá því á laugardag. Leitað er í Bleiksárgljúfri, í Fljótshlíðinni og langt fram eftir ánni. 

Vinkona konunnar, erlend kona á fertugsaldri, fannst látin í í gljúfrinu í gær, skömmu eftir að leit að konunum hófst.

Að sögn Sveins K. Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns á Hvolsvelli, er dánarorsök erlendu konunnar ekki þekkt. Ekki er talin ástæða til að ætla að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti.  

Föt kvennanna fundust við hyl í gljúfrinu. Aðstæður til leitar í gljúfrinu eru erfiðar en þar er djúpt og margir hylir. 

Konan sem fannst látin var á ferðalagi hér á landi ásamt íslenskri vinkonu sinni. Kon­urn­ar voru í sum­ar­bú­stað í Fljóts­hlíð og höfðu farið í göngu­túr en ekk­ert hef­ur spurst til þeirra síðan á laug­ar­dag. Leit hófst síðdeg­is í gær og tek­ur fjöl­mennt lið þátt í leit­inni. 

Sér­hæft leitar­fólk, göngu­hóp­ar og kafar­ar eru nú við leit í inn­an­verðri Fljóts­hlíðinni. Einnig hafa leit­ar­hund­ar verið notaðir og þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar hef­ur leitað á svæðinu úr lofti í gær og í dag, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Slysa­varna­fé­lag­inu Lands­björg.

Frétt mbl.is: Fannst látin í Fljótshlíð

Þyrla Landhelgisgæslunnar er m.a. notuð við leitina.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er m.a. notuð við leitina. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert