Sérstakur saksóknari lagði fram samantekt yfir þau gögn sem varða hvern og einn sakborning í verðsamráðsmálinu svokallaða, þ.e. út frá þeim sakargiftum sem tilrgreindar eru í ákærunni, við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.
Þá var verjendum veittur frestur til nóvember til að skila greinargerðum í málinu.
Dómari beindi því til ákæruvaldsins í síðasta þinghaldi, sem fór fram 22. maí sl., að útbúa yfirlitið sem var skilað inn í morgun.
Við síðustu fyrirtöku neitaðu allir sakborningar sök. Um er að ræða 13 karlmenn sem störfuðu hjá Byko, Húsasmiðjunni eða Úlfinum byggingavöruverslun. Sérstakur saksóknari ákærði þá fyrir samkeppnisbrot framin á árunum 2010 og 2011. Skjöl málsins telja tæplega fimm þúsund blaðsíður.
Næsta þinghald verður 20.nóvember nk.