Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir óvenju öflugri lægð miðað við árstíma á þriðjudag, sem fer yfir landið á miðvikudag. Veðurstofan minnir ferðalanga með aftanívagna á að huga sérstaklega að veðurathugunum og veðurspá næstu daga og einnig þá sem séu að fara að heiman að huga að lausamunum.
Í fréttatilkynningu segir að á þriðjudag verði lægðin vestur af landinu og vindáttin því suðaustlæg og megi búast við að vindstyrkurinn verði á bilinu 10-18 m/s, einna hvassast um landið SV-vert og hviður við fjöll allt að 35 m/s. Þessu fylgi mikil rigning, mest sunnanlands síðdegis og um kvöldið.
Á miðvikudag er að sjá að lægðin fari til norðausturs og verði skammt norður af landinu. Á þessari stundu er óvíst hvar versta veðrið verður en vísbendingar eru um að mesti vindurinn verði úr norðvestri um landið suðvestanvert um kvöldið á meðan mesta úrkoman verður líklega norðvestanlands og á Vestfjörðum.
Síðan er gert ráð fyrir að lægðin fari til austurs og ákveðin norðanátt taki yfir með rigningu fyrir norðan en þurrt verði að kalla syðra.
Lítið þarf út af að bera í staðsetningu lægðarinnar til að ákvarða hvar versta verðið verður á hverjum tíma, þannig að einhverra breytinga er að vænta þegar nær dregur.