Þrátt fyrir að meira en fjórar vikur séu liðnar frá því að meiðyrðamál Gunnars Þorsteinssonar, sem jafnan er kenndur við Krossinn, var dómtekið af Héraðsdómi Reykjavíkur bólar ekkert á dómi í málinu. Samkvæmt heimildum mbl.is óskaði dómari málsins eftir fresti og urðu málsaðilar við óskinni.
Málið höfðaði Gunnar á hendur tveimur konum, fyrrverandi ritstjóra Pressunnar og útgáfufélagi Pressunnar vegna fréttaflutnings af nokkrum konum sem sökuðu Gunnar um kynferðisbrot. Gunnar krefst 15 milljóna króna í skaðabætur, fimm milljóna frá hverjum aðila fyrir sig, og afsökunarbeiðni.
Einar Hugi Bjarnason, lögmaður Gunnars, sagði við aðalmeðferð málsins að umfjöllun Pressunnar hefði lagt líf Gunnars í rúst. „Þetta hefur haft í för með sér óbætanlegan skaða fyrir stefnanda enda nafn hans um aldur og ævi tengt kynferðisbrotum. Brotum sem hann hefur ávallt neitað fyrir og aldrei dæmdur fyrir.“
Meðal ummæla sem krafist er ómerkingar á eru:
Eins og áður segir fór aðalmeðferð í málinu fram í síðasta mánuði og var það dómtekið 21. maí. Í lögum um meðferð einkamála segir að dómur skuli kveðinn upp svo fljótt sem unnt er og hafi dómur ekki verið kveðinn upp í máli sem munnlega var flutt innan fjögurra vikna frá því það var dómtekið skuli það flutt á ný nema dómari og aðilar telji það óþarft.
Samkvæmt heimildum mbl.is óskaði dómari málsins eftir allt að átta vikna fresti og samþykktu allir málsaðilar þá ósk og lýstu yfir að ekki væri ástæða til að flytja málið á ný.
Hér má lesa fleiri fréttir af meiðyrðamáli Gunnars Þorsteinssonar.