Meirihluti bæjarráðs Akureyrar lýsir yfir fullum stuðningi við ákvörðun stjórnvalda um að fjölga opinberum störfum í bænum með því að hafa höfuðstöðvar Fiskistofu á Akureyri.
Í bókum bæjarráðsins á fundi nú í morgun segir að ákvörðunin sé í samræmi við ítrekaðar ályktanir bæjarráðs um mikilvægi þess að slík fjölgun eigi sér stað og í fullu samræmi við stefnu stjórnvalda.
„Akureyrarbær hefur þurft að horfa á eftir störfum af svæðinu og er því um ánægjulegan viðsnúning að ræða,“ segir í bókun bæjarráðsins.
Bæjarráðið telur Akureyri kjörstað fyrir starfsemi Fiskistofu vegna þeirrar sérfræðiþekkingar sem þar er til staðar á sjávarútvegi bæði hjá Háskólanum á Akureyri og hjá fyrirtækjum er starfa í greininni á Norðurlandi. „Meirihluti bæjarráðs vill árétta að á Akureyri er fjölbreytt og sterkt samfélag sem er vel í stakk búið til þess að þar séu reknar stofnanir á vegum ríkisins á borð við Fiskistofu og munu bæjaryfirvöld standa vel að baki starfseminni.“
Í bókun bæjarráðsins segir að skiljanlegt sé að flutningur stofnunarinnar valdi starfsmönnum hennar áhyggjum. „Meirihluti bæjarráðs lýsir yfir vilja til að aðstoða þá starfsmenn sem vilja flytja með stofnuninni og hvetur þá til að útiloka ekki strax þann möguleika. Meirihluti bæjarráðs telur að með samstilltu átaki verði hægt að taka vel á móti því fólki og aðstoða eftir föngum til að verða hluti af nýju samfélagi.“
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista sat hjá vegna ofangreinda bókunar og óskar bókað:
„Ég lýsi yfir fullum stuðningi við stefnu stjórnvalda um að fjölga opinberum störfum á landsbyggðunum og flytja starfsemi opinberra stofnana en bendi á að mikilvægt er að útfæra stefnuna á faglegan hátt, meðal annars með aðferðum breytingastjórnunar. Mikilvægt er að íbúar á landsbyggðunum geti valið sér störf eftir áhugasviði og sérþekkingu og því skora ég á stjórnvöld að setja aukinn kraft í verkefnið Störf án staðsetningar og gera þar með öllum Íslendingum kleyft að sækja um opinber störf óháð búsetu.“