Buster glefsaði í barn

Fíkniefnaleitarhundurinn Buster.
Fíkniefnaleitarhundurinn Buster. Ljósmynd/Guðmundur Karl

Laugardaginn 28. júní varð það óhapp að fíkniefnaleitarhundurinn Buster glefsaði í barn sem kom að honum þar sem hann var bundinn við fellihýsi umsjónarmanns síns á tjaldsvæði í Árnessýslu en lögreglumaðurinn sem hefur umsjón með hundinum var þar í útilegu með fjölskyldu sína.  

Barnið er fætt árið 2006 og meiddist á hendi þannig að húðrispur hlutust af og úr a.m.k. einni þeirra blæddi.   

Foreldrar barnsins mátu málið þannig, eftir að hafa ráðfært sig við heilbrigðisstarfsmenn, að ekki væri tilefni til að leita með barnið til læknis. Í samtali yfirlögregluþjóns við föður barnsins að kvöldi sama dags og aftur í dag kom fram að ekki væri að sjá annað en að barnið hefði náð sér að fullu.

Buster bíður hins vegar þess að fram fari sérstakt skapgerðarmat á honum en fram að því verður hann að sætta sig við að bera múl eða körfu til öryggis. Hann heldur vinnunni a.m.k. fyrst um sinn, segir í frétt lögreglunnar á Selfossi um málið.

Frétt mbl.is: Buster lætur nefið ráða för

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert