Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á fimmta tímanum í nótt þrjá karlmenn eftir líkamsárás á Bústaðavegi. Sá sem fyrir árásinni varð var tekinn upp í bíl og síðan skilinn eftir á Reykjavíkurvegi í Hafnafirði. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að hann hafi verið með áverka á höfði og var hann umsvifalaust fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið.
Árásarmennirnir þrír voru allir vistaðir í fangageymslu.
Þá voru þrír handteknir í Vogahverfi, einnig á fimmta tímanum í nótt, eftir að ráðist var á karlmann og úlpu hans stolið. Árásarmennirnir voru vistaðir í fangageymslu.