Félagið Ísland-Palestína mun standa fyrir útifundi á Lækjartorgi klukkan 17 á morgun vegna atburðanna fyrir botni Miðjarðarhafs undanfarna daga.
Svipaðir fundir hafa verið haldnir víða um heim undanfarið og það sem af er degi hafa þúsundir tekið þátt í samstöðufundum með Palestínumönnum víðsvegar í Asíu og Ástralíu. Í Sydney voru um þrjú þúsund á fundi en 165 hafa látist í árásum Ísraela og yfir eitt þúsund særst.