„Það er afar mikilvægt að Úkraína fái þrifist sem opið lýðræðisríki sem búi í sátt og samlyndi við öll grannríki sín. Á fundinum ræddum við hvernig lægja megi öldurnar í austurhluta landsins og tryggja frið og öryggi fyrir alla íbúa landsins,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sem fundaði í kvöld með Petro Poroshenkom, forseta Úkraínu, og Pavlo Klimkin, utanríkisráðherra landsins.
Gunnar Bragi er í tveggja daga heimsókn í Úkraínu ásamt Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands. Auk þeirra tveggja tók Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, þátt í fundinum með forsetanum.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu er haft eftir Gunnari Braga að áríðandi sé að komið verði á vopnahléi og deiluaðilar setjist að samningaborði hið fyrsta. Einnig að Gunnar Bragi hvetji rússnesk stjórnvöld til að hlutast til um að aðskilnaðarsinnar leggi niður vopn og taki þátt í viðræðum til að miðla málum.
Þá ítrekar utanríkisráðherra að innlimun Rússlands á Krímskaga brjóti í bága við alþjóðalög. „Það varðar hagsmuni Íslands miklu að alþjóðalög séu ávallt virt. Þess vegna skipta atburðir liðinna mánaða í Úkraínu máli fyrir okkur. Með heimsókn minni núna vil ég undirstrika það að rödd Íslands heyrist til varnar alþjóðalögum og reglu.“
Завершилася зустріч Президента України Петра Порошенка з міністрами закордонних справ Польщі, Латвії та Ісландії pic.twitter.com/7PhVfQpGhc
— APU (@APUkraine) July 15, 2014