Bretinn Colin Hales er nú staddur hér á landi, en hann hyggst fljúga í kringum hnöttinn á lítilli heimasmíðaðri flugvél. Hales er flugmaður og flugvélaverkfræðingur og liggur flugvélasmíði því ágætlega fyrir honum. Hann hefur verið hér á landi í nokkra daga þar sem ekki er hægt að fljúga frá landinu í hvaða veðurskilyrðum sem er á lítilli eins manns flugvél.
Hales er þó ánægður með dvöl sína hér, segist hafa flogið yfir fallega staði og mætt mikilli gestrisni hjá meðlimum flugklúbbsins Geirfugls sem og öðrum landsmönnum.