Bílvelta varð á Vatnsnesvegi í Vestur-Húnavatnssýslu stuttu eftir klukkan 15 í dag. Engin meiriháttar meiðsl urðu á farþegum en sjúkrabíll mætti á svæðið.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi er vegurinn á svæðinu lélegur og oft verið kvartað undan honum til Vegagerðarinnar, en von er á því að hann verði lagaður fljótlega.