Að loknum útifundinum á Ingólfstorgi í kvöld afhentu félagsmenn Íslands-Palestínu Jóhannesi Skúlasyni, aðstoðarmanni forsætisráðherra, minningarkrans og borða með nöfnum þeirra 648 manns sem látist hafa í hernaðaraðgerðum Ísraelsmanna. Jóhannes veitti þessu viðtöku í fjarveru Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra.
Eftir fundinn sendi félagið frá sér ályktun þar sem krafist er þess að blóðbaðið á Gaza verði stöðvað tafarlaust, umsátrinu um Gaza verði aflétt og að alþjóðleg vernd hljótist fyrir Palestínumenn.
Að útifundinum á Ingólfstorgi stóðu, ásamt félaginu Ísland-Palestína, Alþýðusamband Íslands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Bandalag háskólamanna, Öryrkjabandalag Íslands, Kennarasamband Íslands, SFR, Verkalýðsfélag Akranes, Efling, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin, Dögun, Píratar, VG, Björt framtíð, Alþýðufylkingin, Samtök hernaðarandstæðinga og Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna.
Að neðanverðu má sjá ályktun félagsins í heild sinni:
„Útifundur Félagsins Ísland-Palestína, haldinn á Ingólfstorgi í Reykjavík 23. júlí 2014, með stuðningi fjölmennustu hagsmunasamtaka landsins, stjórnmálaflokka og friðarhreyfinga,
fordæmir fjöldamorð Ísraelsstjórnar á íbúum Gaza og hvetur íslensk stjórnvöld til að beita öllum tiltækum ráðum til að endir verði bundinn á blóðbaðið tafarlaust og umsátrinu um Gaza aflétt.
Fundarmenn heita því að gera allt sem í þeirra valdi stendur, allir sem einn, að fylgja eftir kjörorðum fundarins: Stöðvum blóðbaðið á Gaza tafarlaust, alþjóðlega vernd fyrir Palestínumenn, umsátrinu um Gaza verði aflétt, niður með hernámið, frjáls Palestína.“