Aníta Margrét Aradóttir mun taka þátt í lengstu og erfiðustu kappreið í heimi í Mongólíu í ágúst. 45 reiðmenn alls staðar að úr heiminum taka þátt í Mongol Derby-kappreiðinni sem er 1.000 km löng og jafnframt talin sú hættulegasta sem til er.
Líkt og fram kom í viðtali mbl.is við Anítu fyrir nokkru ríða keppendur mongólskum villihestum sem eru lítið sem ekkert tamdir. Skipt verður um hest á 40 km fresti svo að hestarnir þreytist ekki. Aníta er fyrsti Íslendingurinn sem tekur þátt í Mongol Derby-reiðinni en hún mun styrkja barnaspítala Hringsins í reiðinni í Mongólíu.
„Þetta er mjög krefjandi kappreið og ég er orðin mjög spennt,“ er haft eftir Anítu í fréttatilkynningu en hún ætlar með þátttöku sinni að safna peningum fyrir Barnaspítala Hringsins. „Ég sótti upphaflega um að taka þátt í keppninni á næsta ári en það losnuðu skyndilega pláss í keppnina núna í ár þannig að ég sló til. Ég fæ mun styttri undirbúningstíma en hinir knaparnir en þeir voru valdir í október á síðasta ári. Ég ætla að gera mitt allra besta og stefnan er auðvitað að klára kappreiðina og komast alla þessa 1.000 km á sem bestum tíma.“ Hún er lærður tamningamaður frá Háskólanum á Hólum og hefur starfað sem tamningamaður í 16 ár. Auk þess er hún reiðkennari að mennt. Aníta hefur starfað mikið erlendis, í Evrópu og Bandaríkjunum, bæði við að þjálfa íslenska hesta og sýna þá á hestasýningum.
Hefur reynst mörgum knöpum ofviða
Mongol Derby-reiðin hefur verið haldin undanfarin sex ár og hefur reynst mörgum knöpum ofviða vegna hinnar erfiðu og löngu reiðar. „Ég er ekkert smeyk þrátt fyrir að þetta sé löng, erfið og hættuleg leið. Ég er full af baráttuanda og bjartsýni. Ég lít á þetta sem mikið ævintýri,“ segir hún í tilkynningunni. Mjög mikill kostnaður fylgir því að taka þátt í Mongol Derby-reiðinni. Bæði þarf Aníta að greiða keppnisgjald og ferðagjöld en hún segir að vel gangi að fjármagna ferðina.
Keppendum í Mongol Derby ber skylda til að safna hvatningarstyrkum og mun Aníta safna fyrir Barnaspítala Hringsins. Einnig mun hún safna peningum til styrktar góðgerðarfélaginu Cool Earth sem vinnur að verndun regnskóga Amazon.
„Allir sem taka þátt í kappreiðinni þurfa að safna fyrir Cool Earth en svo mátti ég velja annað góðgerðarfélag sjálf. Ég vildi velja góðgerðarmál sem hvetur mig áfram og ég veit að Barnaspítali Hringsins mun gera það,“ segir Aníta en hún verður að ná ákveðnu lágmarki í söfnuninni og verður hún að hafa náð því mánuði eftir að keppninni lýkur.
Hægt er að heita á Anítu með fjárframlögum með því að leggja inn á reikning 515 - 04 - 253774 til að styrkja Barnaspítala Hringsins og 515 - 04 - 253778 til að styrkja Cool Earth. Sama kennitala er á báðum reikningunum en hún er : 200282-3619