Alvarleg líkamsárás við Frakkastíg

Lögregla hefur lokað neðri hluta Frakkastígs.
Lögregla hefur lokað neðri hluta Frakkastígs. Ljósmynd/Pressphoto.biz

Alvarleg líkamsárás varð við Frakkastíg í kvöld, þar sem maður stakk annan mann. Lögreglan lokaði Frakkastíg milli Hverfisgötu og Laugavegar, en hefur nú opnað hann að nýju.

Himildir mbl.is herma að til átaka hafi komið milli tveggja erlendra manna, með þeim afleiðingum að annar stakk hinn með hnífi. 

Ekki er vitað um ástand þess sem var stunginn, eða hvort einhver sé í haldi lögreglu.

 Ekki hefur náðst í lögreglu vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert