Aníta er komin í búðir 13 að loknum fjórða keppnisdegi á Mongol Derby. Þetta segir á Facebooksíðu Anítu.
Aníta er í 12.-16. sæti en níu keppendur eru fremstir og komnir í búðir 15, en tveir keppendur eru í búðum 14. Aníta er því enn nokkuð framarlega í þessari erfiðu kappreið en 40 keppendur eru eftir.
Sjö hafa hætt keppni sökum veikinda eða meiðsla samkvæmt upplýsingum á heimasíðu keppninnar.
Aníta heldur þeysireiðinni áfram