Maður var í kvöld færður á slysadeild með mörg stungusár í brjóstholi eftir alvarlega líkamsárás við Frakkastíg í kvöld. Lögreglan lokaði neðri hluta Frakkastígs vegna atviksins.
Ástand þess sem var stunginn var að sögn læknis stöðugt þegar hann kom á bráðamóttöku.
Frakkastígur hefur verið opnaður að nýju fyrir umferð.
Alvarleg líkamsárás við Frakkastíg