„Þetta er búið að vera mjög erfitt en ég er alla vega heil og ekki enn dottið af baki. Þetta er gríðarleg keyrsla og ég er orðin mjög þreytt. Nú er bara markmiðið að klára keppnina og það ætla ég mér að gera,“ segir reiðkonan Aníta Margrét Aradóttir í símaviðtali sem birtist á Facebook-síðu hennar rétt í þessu. „Það yrði mikill sigur því það hafa margir fallið út vegna meiðsla og veikinda. Mig er farið að dreyma um rúm, góðan mat og sturtu. Ég hef bara náð að baða mig tvisvar í ám á leiðinni og það verður yndislegt að komast í sturtu.“
Samkvæmt Facebook-síðunni komst Aníta áðan í búðir 23 og hefur lokið um 800 km í kappreiðinni Mongol Derby sem er 1000 km löng.
Anítu gekk vel fyrstu sex keppnisdagana en lenti í ógöngum í gær þegar hún fór úr búðum 19 og ruglaðist á GPS-tækinu. „Þetta var bölvað klúður hjá mér,“ segir Aníta.
„Ég fór af stað úr búðum 1 ásamt tveimur konum en hestur annarrar þeirra veiktist af ofþornun og þær þurftu að stoppa. Keppnisskapið varð til þess að ég ætlaði að halda ein áfram en bjóst við að þær myndu ná mér því þær eru báðar mjög öflugar. Ég var allt í einu orðin villt í æðislega fallegum dal og ákvað að bjalla eftir hjálp. Hálftíma seinna kom jeppi með læknum og hjálparliði því þeir héldu að ég hefði slasast eða veikst.“
Aníta fékk refsingu fyrir að villast af leið og dómarar vísuðu henni aftur í búðirnar þar sem hún ákvað að bíða eftir fleiri keppendum.
„Þetta varð til þess að ég féll talsvert mikið aftur úr en það verður bara að hafa það. Ég ákvað að bíða eftir fleiri keppendum því ég treysti mér ekki ein út á slétturnar aftur. Ég ákvað því að vera í hópi með bresku lífvörðunum í dag. Þeir eru mjög fínir og ef Elísabet Englandsdrottning treystir þeim fyrir lífi sínu þá hlýt ég að geta gert það líka,“ segir Aníta.
Aníta hefur sloppið vel hingað til og aldrei dottið af baki. Jafnframt hefur hún ekki lent í hættum að ráði en margir keppendur hafa veikst og slasast á leiðinni.
„Reyndar réðst einn af mongólsku varðhundunum að hestinum mínum sem skelfdist mjög en ég náði að halda mér á baki. Ég hef ekki lent í úlfahjörðum, alla vega ekki ennþá. Það hefur samt ýmislegt gengið á hjá öðrum keppendum. Margir hafa veikst og aðrir slasast enda hafa margir dottið af baki. Einni konunni var næstum því rænt af einhverjum ribböldum úti á sléttunni en hún náði að bjarga sér og kalla eftir hjálp sem barst fljótt. Einn af bresku lífvarðarliðunum féll illa af baki og slasaðist og það þurfti að senda þyrlu eftir honum. Það var talið að hann hefði hálsbrotnað en sem betur fer kom í ljós að meiðslin voru ekki svo alvarleg. Ég borðaði lítið fyrstu þrjá dagana nema harðfisk sem ég hafði með mér en fór svo að borða mongólska matinn sem mér finnst ekki góður. Ég hef grennst talsvert og er orðin mjög þreytt. Það eru rétt um 200 km eftir og ég er staðráðin í að klára þessa kappreið,“ segir Aníta að lokum.
Hér má fylgjast með Anítu á Facebook.
Sjá frétt mbl.is: Aníta dróst aftur úr