Lögreglan þurfti að hafa afskipti af töluverðum fjölda unglinga í miðbænum í nótt. Haft var samband við foreldra sem þurftu að sækja þau. Auk þess var hellt niður töluverðu magni af áfengi sem þau höfðu í fórum sínum.
Greiðlega gekk að koma umferð úr bænum eftir að dagskrá Menningarnætur lauk.