Samkomulag á milli Sjómannafélags Íslands og Eimskips liggur klárt fyrir til undirritunar og er búist við því að skrifað verði undir á mánudaginn. Þetta segir Jónas Garðarsson, formaður sjómannafélagsins í samtali við mbl.is. Deilur hafa staðið í marga mánuði á milli starfsmanna Herjólfs og Eimskips.
Hann segir að samkomulagið hafi legið fyrir í gærkvöldi og að verið sé að kynna samninginn fyrir félagsmönnum. Hann vildi ekki tjá sig um efni samningsins að svo stöddu.
Kjaradeilunni var vísað til Ríkissáttasemjara í janúar á þessu ári. Í febrúar voru svo boðaðar verkfallsaðgerðir frá og með 5. mars. Þegar þeim hafði verið beitt í þrjár vikur samþykkti Alþingi lög sem kveða á um frekari verkfallsaðgerðum á Herjólfi verði frestað til og með 15. september.
Nú, skömmu áður en verkfallsaðgerðir gætu hafist að nýju, virðist því liggja fyrir samkomulag sem bindur enda á þessa löngu deilu.