Vel ríflega fimmtíu þúsund viðskiptavinir Símans geta nú virkjað rafræn skilríki í farsímann sinn án endurgjalds, en farsímaskilríki eru talin öruggasta auðkenningin sem hægt er að nota á netinu.
Þeir sem ekki hafa tengt skilríkin við símann verða hvattir til þess á næstu vikum.
Rafræn undirskrift vegna lánaleiðréttinga ríkisstjórnarinnar verður forsenda þess að ríkið telji umsækjendurna hafa samþykkt ráðstöfunina. Í frétt á mbl.is í vikunni sem leið var greint frá því að 69 þúsund hefðu óskað eftir leiðréttingu verðtryggðra lána sinna.
„Þessi krafa ríkisstjórnarinnar um rafræna undirritun er mikil hvatning fyrir fólk að fá sér rafræn skilríki. Með skilríkjunum í símanum er notandinn með hæsta öryggisstig sem er í boði í dag. Ástæðan er einföld, lykilorðið er aldrei á netinu og undirritunin er í öruggu umhverfi á SIM-kortinu,“ segir Þór Jes Þórisson, forstöðumaður tæknimála, í fréttatilkynningu frá Símanum.
Viðskiptavinir Símans eru sem stendur þeir einu sem geta fengið rafræn skilríki í farsíma eða spjaldtölvur, en Síminn kynnti skilríkin í farsíma í nóvember í fyrra.