Akrafell, gámaflutningaskip Samskipa, sem strandaði undir Vattarnesskriðum milli Reyðarfjarðar og Fáskúðsfjarðar aðfaranótt 6. september síðastliðins, er enn í höfn á Eskifirði.
Dæling á sjó úr vélarrúmi skipsins er enn ekki hafin, samkvæmt upplýsingum Önnu Guðnýjar Aradóttur, forstöðumanns markaðs- og samskiptamála Samskipa.
„Ástæða þess að dæling á sjó úr vélarrúminu er enn ekki hafin er sú, að það er verið að vinna í því að þétta skipið eftir lekann sem kom að því við strandið,“ segir Anna Guðný í Morgunblaðinu í gær.