Kemur verst við tekjulægri heimili

Neytendasamtökin mótmæla harðlega áformum stjórnvalda.
Neytendasamtökin mótmæla harðlega áformum stjórnvalda. Sverrir Vilhelmsson

Neytendasamtökin mótmæla harðlega þeim áformum sem koma fram í fjárlagafrumvarpi næsta árs um að virðisaukaskattur á matvæli verði hækkaður úr 7% í 12%. Fram hafi komið að tekjulægstu heimilin verji 17,6% ráðstöfunartekna sinna í matar- og drykkjarvörur, á móti 10,7% hjá tekjuhæstu heimilunum. Því sé ljóst að þetta komi verst við tekjulægri heimili.

Þá segjast samtökin ekki fallast á þau rök stjórnvalda að þetta sé til einföldunar á skattakerfinu enda verði áfram tvö virðisaukaskattsþrep, þó svo að annað hækki um fimm prósentustig en hitt lækki um eitt og hálft prósentustig.

„Minnt er á að það voru einmitt sömu flokkar í ríkisstjórn þegar ákveðið var að lækka virðisaukaskatt á matvörur úr 14% í 7%. Neytendasamtökin studdu eindregið þá aðgerð og hljóta því að spyrja hvað hafi breyst síðan þá,“ segir í frétt á vef samtakanna.

Neytendasamtökin gera ráð fyrir að hækkun á matarskatti komi fram í verðlagi um leið og hún tekur gildi og hafi þar með umtalsverð áhrif á verðtryggingu húsnæðislána. En samtökin hafa áhyggjur af því að lækkanir í efra þrepi virðisaukaskatts og niðurfelling vörugjalda muni ekki skila sér til neytenda í sama mæli, enda hafi dæmin sýnt að slíkar lækkanir skila sér í mörgum tilvikum illa  til neytenda. Nema því aðeins að  stjórnvöld komi á fót sérstöku eftirliti til að fylgjast með að lækkanir skili sér í verðlagi. „Gera Neytendasamtökin því þá kröfu, verði þessar tillögur að veruleika, að því verði sérstaklega fylgt eftir, að umræddar lækkanir skili sér til neytenda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert