„Ég var alveg steinhissa þegar ég sá þessi ósköp hérna út um eldhúsgluggann, stærðarinnar skip strandað á eyrinni,“ segir Jón Karl Úlfarsson, bóndi á Eyri í Fáskrúðsfirði. Hann segir nokkra bíla vera komna á staðinn og skipið hallist lítið. Þá eru bátar komnir upp að hlið skipsins.
Að sögn Jóns Karls er blíðskaparveður og sjórinn sléttur. Aðspurður segist hann telja að skipið hafi verið á leið út fjörðinn.
Flutningaskip strandaði á skeri í Fáskrúðsfirði um klukkan átta í kvöld. Búið að kalla út björgunarsveitir á Austurlandi, þ.m.t. björgunarskip og báta allt frá Vopnafirði til Hornafjarðar.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu á Eskifirði er ekki vitað hvort hætta er á ferð. Talið er um erlent skip sé að ræða. Sautján eru í áhöfn skipsins en það strandaði á skeri í fjörunni fyrir neðan bæinn Eyri á Fáskrúðsfirði. Skipið er 106 metra langt.
Ekki hafa fengist upplýsingar um farm skipsins eða hvort það var á leið inn eða út fjörðinn.
mbl.is flytur frekari fréttir af málinu eftir því sem þær berast.