Ekki lítur út fyrir að flutningaskipið Green Freezer verði dregið af strandstað á háflóði í kvöld. Björgunarsveitir, lögregla, aðgerðastjórn og fleiri sem hafa verið á vettvangi eru nú á heimleið en að sögn lögreglu á Fáskrúðsfirði er það nú útgerðarinnar að finna út hver dregur skipið.
Búið er að senda dráttarbátinn heim en hann kom frá Fjarðarbyggð. Varðskipið Þór er í firðinum og hefur eftirlit með skipinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki talin stafa hætta af skipinu þar sem það er.
Eins og komið hefur fram í fyrri fréttum mbl.is mun Green Freezer ekki sigla fyrir eigin vélarafli þótt það takist að draga það af strandstað við Fáskrúðsfjörð. Kafarar könnuðu ástand skipsin