Farið fram á gæsluvarðhald

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu yfirheyrir nú karlmann sem er grunaður um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana í Breiðholti í nótt. Lögð verður fram krafa um gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna síðar í dag. Börn hjónanna, tveggja og fimm ára voru á heimilinu, en þeim hefur verið komið í viðeigandi umönnun hjá barnaverndaryfirvöldum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Eins og fram hefur komið, hefur lögreglan til rannsóknar andlát 26 ára gamallar konu. Eiginmaður konunnar, sem er 28 ára að aldri, er í haldi lögreglu grunaður um að hafa orðið henni að bana.

Lögreglu barst tilkynning um kona væri látin á heimili sínu í Breiðholti skömmu eftir miðnætti. Tilkynningin barst frá aðila sem hinn handtekni hafði látið vita af andlátinu. Við komu á vettvang vaknaði grunur um að andlát konunnar hefði borið að með saknæmum hætti. Eiginmaður konunnar, sem ekki hefur komið við sögu lögreglu áður vegna sakamála, var handtekinn í íbúðinni og færður í fangageymslu lögreglu. Hann er grunaður um að hafa þrengt að öndunarvegi konunnar þannig að hún hlaut bana af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert