Mikill viðbúnaður er hjá björgunarsveitum í Árnessýslu en lögregla og björgunarsveitarfólk hefur leitað frá því um níuleytið í morgun að manni við Óseyrarbrú yfir ósa Ölfusár, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.
Ekki er hægt að fá frekari upplýsingar um leitina að svo stöddu.