Ikea hefur ákveðið að innkalla PASTAÄLGAR FULLKORN heilhveitipasta og PASTAÄLGAR hveitipasta, sem selt hefur verið í sænska matarhorninu, inniheldur mögulega soja, sem kemur ekki fram á innihaldslýsingu.
„Greining á PASTAÄLGAR FULLKORN og PASTAÄLGAR pasta gaf til kynna að varan innihaldi mögulega soja, sem kemur ekki fram á umbúðunum. Soja er ofnæmisvaldur og fólk með ofnæmi fyrir soja gæti fundið fyrir einkennum eftir neyslu vörunnar.
Varan er fullkomlega örugg þeim sem ekki eru með sojaofnæmi. Viðskiptavinum með ofnæmi fyrir soja, eða sem vilja sneiða hjá því af öðrum ástæðum, er velkomið að koma með PASTAÄLGAR FULLKORN heilhveitipasta og PASTAÄLGAR hveitipasta í Ikea og fá endurgreitt,“ segir í tilkynningu.