Hér er hægt að fylgjast með bardaganum

Gunnar Nelson mætir Rick Story í Stokkhólmi í kvöld
Gunnar Nelson mætir Rick Story í Stokkhólmi í kvöld

Gunn­ar Nel­son held­ur áfram að klífa met­orðastig­ann í UFC og berst í aðal­b­ar­daga á Fig­ht Nig­ht bar­daga­kvöldi UFC bar­daga­sam­bands­ins í Stokk­hólmi í kvöld, laug­ar­dag­inn 4. októ­ber.

Útsend­ing frá bar­dög­um kvölds­ins hefst klukk­an 19:00, en Gunn­ar stíg­ur síðast­ur inn í búrið og erfitt að spá fyr­ir um með vissu hvenær það verður, en út­send­ingu frá bar­dög­un­um lýk­ur klukk­an 21:15.

And­stæðing­ur Gunn­ars er hinn þrítugi Banda­ríkjamaður Rick Story og mæt­ast þeir í velti­vigt­ar­bar­daga.

Story sem hef­ur viður­nefnið "The Horr­or" hef­ur 25 bar­daga á bak­inu og hef­ur hann farið með sig­ur af hólmi 17 sinn­um. Hann er í 15. sæti velti­vigt­ar­inn­ar á styrk­leika UFC, þrem­ur sæt­um fyr­ir neðan Gunn­ar.

Bar­dag­inn gegn Story verður 15. bar­dagi Gunn­ars sem er enn ósigraður með 13 sigra og eitt jafn­tefli. Þá virðast veðbank­ar hafa trú á að Gunn­ar muni leggja Story af velli.

Fjöl­marg­ar krár og sport­bar­ir munu sýna bar­dag­ann í beinni út­send­ingu á laug­ar­dag­inn og ættu þeir sem hafa áhuga á að fylgj­ast með Gunn­ari glíma við Rick "The Horr­or" Story ekki að eiga í vand­ræðum með að finna staði sem sýna bar­dag­ann.

Hægt að sjá bar­dag­ann á eft­ir­töld­um stöðum (í staf­rófs­röð). List­inn er ekki tæm­andi:

Blá­steinn, Árbæ

Cafe Ca­tal­inu í Kópa­vogi

Classic Rock Ármúla

Enska barn­um - English Pub

Ham­borg­ara­smiðjan Grens­ás­vegi

Hendrix við Gull­in­brú

Hót­el Sel­foss

Hvíti Ridd­ar­inn, Mos­fells­bæ

Írski bar­inn (Irish Pub) í Hafnar­f­irði

Íslenski rokk­bar­inn, Hafnar­f­irði

Kollu­bar, Hvann­eyri

Kondó Bar, Dal­vík

Rauða ljón­inu

Rio sport­b­ar, Hverf­is­götu 46

Silf­ur, Hafnar­f­irði

Smára­Tív­olí, Smáralind

Snóker og Pool­stof­unni í Lág­múla 

Sport­vit­an­um (Ak­ur­eyri)

Stúd­enta­kjall­ar­an­um

Vi­takaffi á Akra­nesi

Vík­in, Höfn í Hornafirði

Ölver sport og karokeb­ar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert