Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, bendir á það á samfélagsvefnum Facebook að samtökin sem kenna sig við íslamskt ríki eru með vefsvæði skráð á Íslandi. Virðist sem svo að henni hafi verið bent á þessa undarlegu tengingu Íslands við samtökin illræmdu á samfélagsvefnum Twitter.
Um er að ræða einskonar fréttasíðu samtakanna sem nálgast má á slóðinni khilafah.is. Þar eru sagðar fréttir af framgangi þeirra í Írak og Sýrlandi ásamt myndum og myndböndum. Á vefsvæði ISNIC má sjá að maður að nafni Azym Abdullah er skráður fyrir léninu og er hann skráður til heimilis í Nýja-Sjálandi.
Interesting dilemma. #ISIS new media website hosted in #Iceland http://t.co/OltvY88sTV @birgittaj pic.twitter.com/blLUst4rup
— Syricide (@Syricide) October 10, 2014