Jólageitin mætt við IKEA

Tignarleg risajólageit.
Tignarleg risajólageit. Harpa Louise

Jólageit er komin í IKEA.

Geitin er orðinn fastagestur í Kauptúninu á þessum árstíma, þar sem hún stendur keik vaktina á hólnum sínum til áramóta. Geitin er rúmlega sex metra há og engin smásmíði, enda dugir ekki minna en kranabíll til að koma henni á sinn stað. Þar trónir hún, skreytt þúsundum ljósa sem lýsa upp umhverfið þar til daginn fer að lengja aftur. 

Jólageit IKEA hefur á þessum tíma þó ekki átt sjö dagana sæla, eins og mbl.is rifjaði upp í þessari frétt.

Jólageitin óveðrinu að bráð 

Harpa Louise
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert