Karlmaður sem er grunaður um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana í íbúð þeirra í Stelkshólum í Breiðholti í lok september hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. nóvember á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Rannsókn málsins stendur enn yfir.
Maðurinn var handtekinn 28. september og úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór fram á að gæsluvarðhaldið yrði framlengt og varð Héraðsdómur Reykjavíkur við þeirri kröfu í dag.
Geðrannsókn stendur nú yfir á manninum en ekki liggur fyrir hvenær henni muni ljúka. Rannsókn málsins er langt komin en óvíst er hvenær henni muni ljúka og málið fer til ákæruvaldsins, en m.a. er verið að bíða eftir niðurstöðum geð- og tæknirannsókna.
Tilkynning barst um andlát konunnar skömmu eftir miðnætti aðfaranótt sunnudagsins 28. september frá manni, sem hinn grunaði hafði látið vita að konan væri látin. Þegar lögregla kom á vettvang vaknaði grunur um að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti, en maðurinn er grunaður um að hafa þrengt að öndunarvegi konu sinnar, sem var 26 ára gömul, þannig að hún hlaut bana af.
Tvö börn þeirra hjóna, tveggja og fimm ára, voru á heimilinu þegar konan lést.