Nýja gistiskýlið á Lindargötu 48 var kynnt fjölmiðlum í dag. Starfsemi gistiskýlisins í Farsóttarhúsinu við Þingholtsstræti mun flytja í húsnæðið á mánudaginn.
„Á flutningadegi munu karlarnir fara út að morgni í Þingholtsstræti og svo inn á Lindargötunni um kvöldið.“ segir Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða.
Nokkur fjöldi yfirmanna úr borgarkerfinu var viðstaddur kynninguna, þeirra á meðal Dagur B. Eggertsson, S. Björn Blöndal, Heiða Kristín Helgadóttir og Stefán Eiríksson.
Gistiskýlið á Lindargötu 48 mun hýsa jafnmarga og Farsóttarhúsið í Þingholtsstræti, tuttugu manns. „Munurinn er samt sá að rýmið leyfir undanþágur. Ef það koma fleiri en tuttugu getum við tekið við þeim. Engum verður vísað frá,“ sagði Sigtryggur um gistiskýlið við Lindargötu í samtali við mbl.is í lok septembermánaðar.
Gistiskýlið hefur rými fyrir 20 manns, jafnmarga og gistiskýlið í Þingholtsstræti, sem verður lokað. Þó verður heimilt að hýsa fleiri á Lindargötu gerist þess þörf.
Nýja húsnæðið er allt mun rýmrar en húsnæðið við Þingholtsstræti. Húsið er á þremur hæðum; á fyrstu tveimur eru svefnherbergi og salernisaðstaða, en á þriðju er stór og rúmgóður matsalur og setustofa, með útsýni til norðurs.
„Það er gaman að sjá hvað það eru margir komnir hérna. Við höfuðm hvorki hugsað þetta sem veislu eða blaðamannafund heldur bara að gefa fólki kost á því að sjá húsnæðið áður en það verður flutt inn í það,“ segir Dagur B. Eggertsson.
„Starfsemin er þess eðlis að við erum ekki að beina fjölmiðlum á að mynda hér þegar hún er komin á fullt. Ég vil þó þakka öllum þeim sem hafa komið að þessari framkvæmd fyrir sitt framlag. Það er ekkert leyndarmál að málefni utangarðsfólks voru mikið áhugamál forvera míns í starfi, Jóns Gnarr. Gistiskýlið er kannski svona áberandi andlit þessa málaflokks.“
Dagur benti einnig á að fjöldi fólks starfaði við málaflokkinn, svo sem borgarverðir og fleiri sem koma að þessum málefnum til að koma þeim sem hægt er í uppbyggilegan farveg. „Það að vera utangarðs þýðir að þú ert gjarnan með mikil heilbrigðis- og félagsleg vandamál. Þetta er mjög mikilvægur málaflokkur fólks og einstaklinga sem oft eru á jaðrinum.“
Sigtryggur Jónsson segir að nýja húsnæðið sé að flestu leyti betra en það gamla. Byggingarreglugerðir hafi hins vegar hleypt upp kostnaði við bygginguna. „Það er öðruvísi hér á landi en víða erlendis.“
Húsnæðið þykir hins vegar mjög vel staðsett, bæði innan hverfisins og með tilliti til fjarlægðar frá miðborginni.