Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær karlmann til að sæta öryggisgæslu á réttargeðdeild Landspítalans á Kleppi til 27. nóvember nk. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana á heimili þeirra í Breiðholti í lok september.
Maðurinn, sem er 29 ára gamall, var handtekinn 28. september sl. og var hann í upphafi úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni til 17. október á grundvelli rannsóknar hagsmuna. Fyrsta hálfa mánuðinn var hann í einangrun í fangelsinu. Þann 17. október var gæsluvarðhaldið yfir honum framlengt til 14. nóvember.
Maðurinn, sem hefur glímt við andleg veikindi, hefur gengist undir geðrannsókn en lögreglan bíður nú eftir niðurstöðum hennar auk þess sem beðið er eftir niðurstöðu krufningar.
Lögmaður mannsins segir í samtali við mbl.is, að maðurinn sé nú í góðum höndum starfsmanna réttargeðdeildarinnar þar sem hann muni fá góða umönnun.
Tilkynning barst um andlát konunnar skömmu eftir miðnætti aðfaranótt sunnudagsins 28. september frá manni, sem hinn grunaði hafði látið vita að konan væri látin. Þegar lögregla kom á vettvang vaknaði grunur um að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti, en maðurinn er grunaður um að hafa þrengt að öndunarvegi konu sinnar, sem var 26 ára gömul, þannig að hún hlaut bana af.
Börn hjónanna, tveggja og fimm ára, voru á heimilinu þegar atvikið átti sér stað, en þeim var komið í viðeigandi umönnun hjá barnaverndaryfirvöldum í kjölfar atviksins.