Íbúar höfuðborgarsvæðisins virðast heldur betur hafa tekið eftir áhrifum mengunar frá gosinu í Holuhrauni.
Hægt er að fylgjast með loftgæðum á vefsíðunni loftgaedi.is
Þar segir að mengunin sé í slíku magni á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu að hún hafi áhrif á þá sem eru viðkvæmir fyrir.
Í dag er búist við froststillu á gosstöðvunum. Við slíkar aðstæður eru auknar líkur á háum styrk mengunar, einkum suðvestantil fyrripart dags.
Lungun mín buguðust við 4 mínútna hjólatímann í vinnuna. #ELDGOS
— Brynhildur Bollad. (@brynhildurbolla) November 4, 2014
Fnykurinn yfir borginni minnir mig á lyktina upp úr íþróttatöskunni minni sem unglingur. Ég vil ekki búa í íþróttatösku.
— Þorsteinn Guðmunds (@ThorsteinnGud) November 4, 2014
Engin Esja í dag. Mig svíður í augun. #grafarvogur pic.twitter.com/DL82KjYLuj
— Dagny Aradottir Pind (@dagnyara) November 4, 2014
Lítil loftgæði á höfuðborgarsvæðinu