Félag prófessora við ríkisháskóla hefur boðað til verkfalls 1.-15. desember næstkomandi. Niðurstaðan er bindandi og því er ljóst að prófessorar fara í verkfall náist samningar ekki fyrir 1. desember.
Yfir 77% félagsmanna tóku þátt í kosningunni og yfir 80% þeirra samþykktu fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir. Atkvæðagreiðslu hjá félaginu lauk klukkan 13 í gær, en niðurstaðan sem varð ljós nú um hádegi, verður kynnt viðsemjendum í dag.
Rúmlega þrjú hundruð virkir félagsmenn eru í Félagi prófessora við ríkisháskóla.
Félagið hefur verið með lausa samninga frá því í mars og að sögn Rúnars Vilhjálmssonar, formanns félagsins, hefur samninganefndin ítrekað beðið um viðbrögð við kröfuatriðum félagsins en án árangurs. Fáist þau ekki sé erfitt að semja um kaup og kjör.
Rúnar segir mikla samstöðu um aðgerðirnar hjá prófessorum, en hann segist þó vona að gengið verði til samninga áður en til verkfalls kemur.
Félagið mun funda með samninganefnd ríkisins á föstudag.
Rúnar sagði í samtali við mbl.is í gær að það hefði gríðarleg áhrif á nemendur ef til verkfalls kæmi. „Þá munu öll próf í námskeiðum þar sem prófessor kemur að einhverju leyti að námsmati eða er umsjónarmaður námskeiðsins falla niður eða frestast. Þetta er mjög víðtækt og á allan hátt staða sem við viljum ekki vera í.“
„Staða sem við viljum ekki vera í“