Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hyggst ekki segja af sér. Þetta staðfestir hún í samtali við blaðamann mbl.is.
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu, var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í morgun fyrir að hafa brotið gegn þagnarskyldu.
Gísli Freyr játaði í gær að hafa lekið gögnunum. Sagði Hanna Birna í kjölfarið að trúnaðarbrot Gísla Freys gagnvart henni, ráðuneytinu og almenningi öllum væri algjört og alvarlegt. Gísli Freyr sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi.