Ari næsti þjóðleikhússtjóri

Ari Matthíasson
Ari Matthíasson mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Ara Matthíasson í embætti þjóðleikhússtjóra til næstu fimm ára, frá og með 1. janúar 2015. 

„Við ákvörðunina var bæði tekið tillit til álits þjóðleikhúsráðs og viðtala við umsækjendur. Ari Matthíasson hefur starfað við hlið fráfarandi þjóðleikhússtjóra, sem framkvæmdastjóri
Þjóðleikhússins, frá árinu 2010.

Hann hefur að baki leikaramenntun frá Leiklistarskóla Íslands og háskólamenntun á meistarastigi í rekstrarhagfræði (MBA) og hagfræði. Hann starfaði sem leikari og leikstjóri frá árinu 1991 og einnig við stefnumótun, markaðsmál og framkvæmdastjórn,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert