Bjarni og Sigurbjörg í Gunnarshúsi

Gunnarshús Dyngjuvegi 8
Gunnarshús Dyngjuvegi 8 mbl.is/Árni Sæberg

Sjötta höfundakvöldið í Gunnarshúsi er á morgun, fimmtudaginn 20. nóvember, kl. 20.00. Þá mæta þau Bjarni Bjarnason og Sigurbjörg Þrastardóttir, lesa upp og svara spurningum Hildigunnar Þráinsdóttur um nýútkomnar bækur sínar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu

Í bókinni Hálfsnert stúlka fjallar Bjarni Bjarnason um unga konu sem finnst illa til reika eftir ellefu ára dvöl í afskekktum skógi í Ástralíu. Sálgreinandi fær það flókna verkefni að komast að því hvað gerðist. Í samtölum þeirra hverfur hún inn í draumkennda frásögn sem hann þarf að túlka og vinna úr. Þegar í ljós kemur hvað gerðist í raun og veru fer af stað óvænt atburðarás. Bókin hefur þegar verið seld til útgáfu í Englandi. 

Sigurbjörg Þrastardóttir gaf nýverið út  ljóðabókina Kátt skinn (og gloría).Teikningar í bókinni eru eftir Birtu Fróðadóttur. Fjallað er um bókina í Morgunblaðinu í dag og rætt við Sigurbjörgu.

Sigurbjörg Þrastardóttir (f. 1973) hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir skáldsöguna Sólar sögu og tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir ljóðsöguna Blysfarir. Kátt skinn (og gloría) er áttunda ljóðabók hennar, segir í tilkynningu.

Bjarni Bjarnason (f. 1965) hefur hlotið mikið lof og fjölmargar viðurkenningar fyrir skáldsögur sínar og meðal annars verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, segir ennfremur í tilkynningu.

Bjarni Bjarnason rithöfundur
Bjarni Bjarnason rithöfundur
Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur og skáld
Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur og skáld mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert