Fyrr í kvöld valt bifreið austan við afleggjarann að Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi. Að sögn lögreglunnar í Stykkishólmi var einn maður í bílnum og slasaðist hann lítið sem ekkert. Maðurinn var með bílbeltið spennt og talið er að það hafi bjargað miklu.
Sjúkrabíll kom á staðinn en læknir um borð taldi ekki ástæðu til þess að fara með manninn á sjúkrahús til aðhlynningar. Bifreiðin er töluvert skemmd.