Þingflokksfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram klukkan 13. í Alþingishúsinu í dag en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins stendur til að ákveða þar hver verður arftaki Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á stól innanríkisráðherra.
Í gærkvöldi voru taldar mestar líkur á því að Bjarni Benediktsson gerði tillögu um að Einar Kristinn Guðfinnsson, forseti Alþingis, tæki við embættinu. Afstaða Einars er þó enn óljós. Þingmennirnir Birgir Ármannsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokksins, eru einnig orðuð við embættið.
Aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem gjaldgengir eru til embættisins eru Ásmundur Friðriksson, Brynjar Níelsson, Elín Hirst, Guðlaugur Þór Þórðarson, Haraldur Benediktsson, Jón Gunnarsson, Pétur H. Blöndal, Unnur Brá Konráðsdóttir, Valgerður Gunnarsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Vilhjálmur Bjarnason.