Mildi þykir að ekki fór verr þegar harður árekstur varð á mótum Glerárgötu og Tryggvabrautar á Akureyri á fjórða tímanum í dag. Tvær fólksbifreiðar lentu þá saman en ökumenn beggja sluppu án teljandi meiðsla. Þeir voru einir í bílum sínum.
Margir árekstrar hafa orðið á þessu horni undanfarin ár en umferðarljósin voru uppfærð á dögunum. Báðir bílar voru á grænu ljósi; annar kom úr suðri, í átt frá miðbænum, en hinn að norðan og beygði austur Tryggvabraut í veg fyrir hinn.