Fjárlaganefnd afgreiddi fjárlagafrumavarp næsta árs í gær. Meðal annars var ákveðið að auka tekjur með því að lækka afslátt af vörugjöldum á fólksbifreiðar sem bílaleigur hafa notið, úr einni milljón niður í 500 þúsund krónur. Þetta mun skila hálfum milljarði króna samkvæmt upplýsingum frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, varaformanni fjárlaganefndar.
Þetta er stærsta breytingin í tekjuleiðinni og með þessu verður hægt að auka framlög til ýmissa verkefna og framkvæmda.
Þá var einnig ákveðið að hækka lágmarksverslun fyrir endurgreiðslu á virðisaukaskatti til erlendra ferðamanna (e. tax free) úr 4.000 krónum upp í 7.000 krónur.
Þær tillögur sem ríkisstjórnin hafði lagt fram til breytinga á fjárlagafrumvarpinu munu halda sér en einnig var ákveðið að veita 1.500 milljónir króna, til viðbótar við þá 5,7 milljarða sem kynntir var í vikunni að yrðu veittir til ýmissa verkefna.
Meðal annars verður 300 milljónum króna varið í uppbyggingu á ljósleiðara annars vegar á Snæfellsnesi og í Skaftártungum og hins vegar á Norðausturlandi, þ.e. í fjarskiptasjóð. Þá verður 170 milljónum varið í landssamgöngur, þ.e. til Vegagerðarinnar. Eins og fram hefur komið fara 500 milljónir í uppbyggingu flugvalla á landsbyggðinni.