Nýtt umsjónakerfi, meira gagnsæi og samráð fag- og hagsmunaaðila er meðal þess sem kveðið er á um í nýjum reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík, sem samþykktar voru á fundi velferðarráðs í gær.
Strætó ehf. mun áfram sjá um ferðaþjónustu fatlaðs fólks en fyrirtækið hefur innleitt nýtt umsjónarkerfi til að auðvelda þjónustuna. Það gerir notendum kleift að panta ferðir með tveggja klukkustunda fyrirvara í stað sólarhrings áður. Þjónustuver ferðaþjónustu fatlaðs fólks er opið frá sjö á morgnanna til tíu á kvöldin.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu standa nú saman að ferðaþjónustu fatlaðs fólks og skapar það meira svigrúm í þjónustunni. Aðrar breytingar eru m.a. til að mæta kröfum um aukið gagnsæi í þjónustu, betra aðgengi upplýsinga fyrir notendur og þar af leiðandi betri möguleika á samráði um að þjónustan mæti ólíkum þörfum.
Kröfur til starfsmanna ferðaþjónustu verða auknar og þurfa allir sem þar starfa að sækja námskeið um þjónustu við fatlað fólk.
Í gildandi reglum Reykjavíkurborgar og nágrannasveitarfélaga getur hver einstaklingur fengið að hámarki 60 ferðir á mánuði en þjónustumiðstöðvum velferðarsviðs er heimilt að veita fleiri ferðir til þeirra notenda sem eru virkir í íþróttum eða skipulögðu félagsstarfi. Umframferðir geta að hámarki verið 20 eða alls 80 ferðir á mánuði. Gjaldskrá miðast áfram við hálft almennt fargjald í strætó nema þegar fjöldi ferða fer yfir 60 á mánuði. Hver aukaferð kostar kr. 1.100.
Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2015. Samráð var haft við hagsmunasamtök og réttindagæslumenn við gerð nýrra reglna.