Héraðsdómur Reykjaness hefur vísað frá dómi ákæru séstaks saksóknara á hendur einum sakborninga í verðsamráðsmálinu svokallaða. Alls voru 13 ákærðir í málinu en aðeins einn þeirra, sem var starfsmaður Byko, krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómari.
Sérstakur saksóknari höfðaði málið á hendur starfsmanna Húsasmiðjunnar, Byko og Úlfsins byggingavara í maí sl. vegna gruns um verðsamráð. Sakborningarnir neituðu allir sök í málinu þann 22. maí sl.
Frávísunarkrafan var lögð fram í nóvember og fór málflutningur um hana fram 4. desember sl.
Saksóknari sagði í samtali við mbl.is, að nú yrði farið yfir forsendur úrskurðarins sem er kæranlegur til Hæstaréttar. Saksóknari segir niðurstöðuna hafa komið á óvart enda ekki gefnar út ákærur á hendur mönnum af tilefnislausu. Kærufrestur er þrír sólarhringar
Málið, sem var í rannsókn í rúm þrjú ár, er gríðarlega umfangsmikið og skjalafjöldinn tæplega fimm þúsund blaðsíður. Rannsóknin hófst í mars 2011 þegar Samkeppniseftirlitið og efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra framkvæmdu húsleitir hjá Byko, Húsasmiðjunni og Úlfinum - byggingarvörum.
Í fyrstu voru 19 manns handteknir en þeim sleppt að lokum yfirheyrslum. Rúmri viku síðar voru 15 manns handteknir og færðir til frekari yfirheyrslu. Loks voru þrettán ákærðir. Aðrir sem handteknir voru eru þó hugsanleg vitni í málinu að sögn sérstaks saksóknara. Sönnunargögn í málinu eru meðal annars tölvupóstar og símtöl á milli starfsmanna.
Fyrirhuguð aðalmeðferð í málinu mun hefjast þann 11. febrúar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vegna fjölda sakborninga er ekki hægt að reka málið í Héraðsdómi Reykjaness, og mun aðalmeðferðin því fara fram í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur.