Snjóað hefur töluvert á Akureyri og er þar nú jólalegt um að litast. Slæm færð var í morgun og þurfti lögregla og björgunarsveitir að aðstoða fólk á leið til vinnu. Jafnframt hefur öllu skólahaldi í grunnskólum verið aflýst í bænum í dag vegna ófærðar.
Einar Guðmann tók þessar fallegu myndir í bænum á leið sinni til vinnu í morgun. Á myndunum má sjá Akureyri í sínum jólalegasta búningi, með jólaljósum, skrauti og að sjálfsögðu jólasnjó.