Sjáðu ofsaveðrið „í beinni“

Lægðin er nú stödd austan við landið.
Lægðin er nú stödd austan við landið. Skjáskot af nullschool.net

Veðurstofan spáir illviðri um land allt í dag og ofsaveðri á austurhluta landsins. Hægt er að fylgjast með lægðinni sem þessu vonskuveðri veldur „í beinni“.

Viðvörum frá Veðurstofunni:

Útlit fyrir norðan illviðri á öllu landinu í dag, sunnudag, og ekkert ferðaveður. Fer að draga úr vindi vestast á landinu seinnipartinn. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir að búast megi við vindhviðum allt að 60 m/s undir Vatnajökli og á Austfjörðum ásamt ofankomu og skafrenningi.

Fylgstu með lægðinni hér. Athugið að stundum þarf að endurhlaða kortið reglulega til að fá nýjustu upplýsingar.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert