Snjó hefur kyngt niður á Akureyri í dag. Götur eru margar hverjar ófærar og hafa íbúar verið hvattir til að halda sig heima. Í bænum er sannkallað vetrarríki og njóta jólaljósin sín vel þegar mjöllin hylur nánast hvern flöt.
mbl.is fékk þessar fallegu myndir sendar frá Einari Guðmanni sem rölti um miðbæ Akureyrar í morgun. Sjón er sögu ríkari!
Hér má sjá myndir sem teknar voru á Akureyri og á Ísafirði í vikunni: