Það er snjóþekja á Sandskeiði og hálka á Hellisheiði og í Þrengslum en hálkublettir á Reykjanesbraut. Hálka eða snjóþekja er á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi en þó er þungfært á Lyngdalsheiði.
Búið er að opna Holtavörðuheiði en annars er hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Vesturlandi en þæfingsfærð á Bröttubrekku. Flughált er á Laxárdalsheiði.
Á Vestfjörðum er víða snjóþekja eða hálka en þæfingsfærð milli Brjánslækjar og Kleifaheiðar en þar er þungfært. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.
Snjóþekja, hálka eða þæfingsfærð er á Norðvesturlandi en búið er að opna Þverárfjall. Hálka er á Öxnadalsheiði og flughálka í Norðurárdal í Skagafirði. Flughálka er einnig milli Sauðárkróks og Hofsóss, í Út-Blönduhlíð og Hjaltadal. Þæfingsfærð er á Siglufjarðarvegi.
Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Norðurlandi eystra.
Á Austurlandi hálka á flestum vegum en snjóþekja á Fjarðarheiði. Hálka er einnig við Suðausturströndina.