Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út vegna göngumanns sem er slasaður á gönguleiðinni á Kerhólakamb í Esju. Maðurinn var á ferð með félögum sínum þegar hann datt og er talið að hann sé fótbrotinn.
Fjallahópur Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er kominn á staðinn og býr manninn undir flutning. Töluverðan mannskap þarf í verkið þar sem um nokkuð erfiðan burð er að ræða vegna snjós og hálku á fjallinu. Veður er þó gott.